fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Gunnar Jóhann grunaður um að bana Gísla: „Þetta er svo hrikalega mikill missir“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Mánudaginn 29. apríl 2019 12:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mennirnir tveir sem sakaðir eru um aðild að dauða Gísla Þórs Þórarinssonar verða leiddir fyrir dómara í kvöld. Frá þessu greinir miðillinn iFinnmark.

Eins og áður hefur komið fram eru hinir grunuðu báðir íslenskir karlmenn á fertugsaldri.  Annar þeirra er Gunnar Jóhann Gunnarsson, hálfbróðir Gísla Þórs. Hann er grunaður um að hafa framið ódæðið,  en hinn er sakaður um hlutdeild. Sakborningarnir hafa ekki verið yfirheyrðir enn, þar sem túlkurinn, sem mun verða lögreglu til aðstoðar, hefur, að sögn Silju Arvolu hjá lögreglunni í Finnmörk, tafist vegna verkfalls flugmanna. Áætlað er að yfirheyrslur fari fram á miðvikudag.

Gunnar skrifaði færslu á Facebook skömmu eftir verknaðinn, en í færslunni virðist hann játa á sig glæpinn. Formleg afstaða hans til sakarefnisins liggur þó ekki fyrir, en meintur hlutdeildarmaður neitar sök.

Fyrirgefið mér, en ég get ekki lifað með það vitandi að, Guðfaðir sonar míns, minn besti maður í giftingunni minni, og ég skýrði son minn í höfuð hans, það réttlætir ekki neitt hvað ég gerði, en sársaukinn og hjartað mitt var brotið það mikið að ég framdi svívirðilegan glæp sem mun elta mig alla ævi. En þetta átti ekki að fara svona en þetta var stórslys, ætlaði aldrei að hleypa af.

Facebook-síðu Gunnars hefur nú verið eytt.

Lögreglan í Noregi fer fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald og bann við bréfasendingum eða heimsóknum, en slíkt er gert sökum rannsóknarhagsmuna.

Margdæmdur

RÚV hefur greint frá því að Gunnar Jóhann eigi sér langan sakaferil hérlendis. Hann hefur verið dæmdur fyrir umferðalagabrot, fíkniefnalagabrot, þjófnað og vopnalagabrot.  Þá var hann dæmdur fyrir naugðun árið 2002, fyrir stórfellda líkamsárás 2007 og stórfellda líkamsárás, frelsissviptingu og rán árið 2010.

Gunnar Jóhann

Samkvæmt frétt RÚV voru bræðurnir báðir sjómenn. Gunnar er grunaður um að hafa banað bróður sínum með haglabyssu en samkvæmt norskum fjölmiðlum hafði Gunnar verið gert að sæta nálgunarbanni vegna grófra hótanna við Gísla.

Aðstandendur og vinir slegnir

Margir minnast Gísla Þórs nú á samfélagsmiðlum, en fráfall hans var með öllu óviðbúið og aðstandendum mikið áfall.

„Þetta er svo hrikalega mikill missir fyrir okkur öll sem þekktu þig. Ég mun ALDREI geta fyrirgefið hvernig þú varst tekinn frá okkur, aldrei.“

„Í morgun bankaði lögreglan upp á. Gísli minn var skotinn til bana í morgun. Í losti sem stendur. Þvílíkt áfall. Sársaukinn er ólýsanlegur.“

„Í dag er ég dofin, föst í óraunverulegum veruleika.“

„Ég bölva í hljóði og blóta djöflinum upphátt. Hvernig getur þetta bara verið!!??!. […]Við fáum þig aldrei aftur Gísli. Veröldin er gjörsamlega hrunin.“

„Auðmýkt augna í brúnleitum bjarma. Angurvært syrgja þig margir og harma.“

 

Fréttin hefur verið uppfærð

Sjá einnig: 

Morðið í Mehamn – „Sársaukinn er ólýsanlegur“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar