fbpx
Föstudagur 22.ágúst 2025
Fréttir

4K að taka yfir í snjallsjónvörpum

Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 23. apríl 2019 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

4K tæknin er búin að taka yfir í öllum nýjustu snjallsjónvörpum frá Sony og X-Motion Clarity tæknin skilar enn meiri og skarpari myndgæðum en þekkst hafa til þessa. Í verslun Origo er að finna mikið úrval af mögnuðum hljómtækjum frá Sony og Bose sem eru merki í fremstu röð.

„Við erum með alla línuna í sjónvörpum frá Sony sem eru afar fallega hönnuð og með mikil gæði. Þau bjóða upp á fullkominn stuðning m.a. við Netflix og Youtube. Sony sjónvörpin sem við erum með í sölu hafa verið afar vinsæl og eru þau á tilboði hjá okkur núna. Ný kynslóð Sony sjónvarpstækja er síðan væntanleg til okkar í verslunina um næstu mánaðamót,“ segir Daníel Þór Valsson, starfandi verslunarstjóri hjá Origo.

Sony í fremstu röð
Daníel segir að Sony sé í fremstu röð þegar kemur að sjónvarpstækjum. „4K tæknin er búin að taka yfir í öllum nýjustu snjallsjónvörpum frá Sony og X-Motion Clarity tæknin skilar enn meiri og skarpari myndgæðum en þekkst hafa til þessa. Sony er með OLED og LED snjallsjónvarpstæki. OLED tækin frá Sony eru sérstök að því leyti að hátalararnir eru innbyggðir í skjáinn þannig að hljóðið berst í gegnum hann. Þetta býður upp á betra hljóð og meiri upplifun. Ef einhver er t.d. að tala hægra megin á skjánum þá berst hljóð frá hægri hlið tækisins.
Í nýju 2019 línunni er búið að færa þessa tækni yfir í LED tækin líka. Flest Sony sjónvörpin sem eru í sölu eru með Android stýrikerfi frá Google.“

Rolls Royce heimabíókerfanna
Daníel segir að í hljómtækjunum séu hljóðstangir mjög vinsælar eða svokallað soundbar. „Fólk er að tengja bassaboxin við þau. Við erum með hljóðstangir sem eru með Dolby Atmos hljóðtækni sem býður upp á gríðarlega mikil hljómgæði. Netflix er m.a. að bjóða upp á efni með Dolby Atmos. Við erum með þrjár tegundir af hljóðstöngum frá Sony sem eru með þetta nýja kerfi. Allar hljóðstangir eru með innbyggt Google Chrome Cast og Google Assistant. Hljóðstangirnar eru vel hannaðar, taka ekki mikið pláss og lúkka vel fyrir framan sjónvarpstækin.
Við erum einnig með hljómtæki frá Bose. Bose er fremst í sinni röð hvað varðar hljómgæði og hefur fengið ótal verðlaun fyrir sína tækni. Við erum með þrjár tegundir hljóðstanga frá Bose og einnig Bose 5,1 hljómkerfi Livestyle 650 sem er eins og Rolls Royce í heimabíóum og hljómkerfum í dag.“

Það er upplifun að versla hjá Origo
„Við leggjum mikla áherslu á að upplifunin í verslun Origo sé fyrsta flokks. Við viljum að fólk geti komið inn í verslunina og prófað og upplifað sjónvörp og hljómtæki við bestu aðstæður. Við erum til dæmis með magnað Bose herbergi þar sem fólk getur prófað og upplifað Bose gæði. Það er skemmtilegt að geta boðið upp á svona upplifun og við finnum það á viðskiptavinum að þeir eru ánægðir með þetta. Við ætlum að einblína á að bjóða upp á upplifun í framtíðinni því það er það sem fólkið vill,“ segir Daníel enn fremur.

Sjá nánar á vefsíðu Origo, origo.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Sonur Lindu slasaður eftir stórhættulegt skemmdarverk á reiðhjólinu hans – „Ég ætlaði varla að trúa því að þetta væri ennþá í gangi“

Sonur Lindu slasaður eftir stórhættulegt skemmdarverk á reiðhjólinu hans – „Ég ætlaði varla að trúa því að þetta væri ennþá í gangi“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Lögreglan á Suðurnesjum ætlar ekki að hefja nýja rannsókn á Geirfinnsmálinu – Bókarhöfundar nafngreindu meintan banamann Geirfinns

Lögreglan á Suðurnesjum ætlar ekki að hefja nýja rannsókn á Geirfinnsmálinu – Bókarhöfundar nafngreindu meintan banamann Geirfinns
Fréttir
Í gær

Hún hefur heimsótt yfir 90 lönd en Ísland er eina landið sem hún getur heimsótt aftur og aftur – Nefnir dæmi um hugulsemi Íslendinga

Hún hefur heimsótt yfir 90 lönd en Ísland er eina landið sem hún getur heimsótt aftur og aftur – Nefnir dæmi um hugulsemi Íslendinga
Fréttir
Í gær

Faðir flúði til óbyggða með börnin og hefur verið á flótta í fjögur ár – Fjölskyldan grátbiður hann um að gefa sig fram

Faðir flúði til óbyggða með börnin og hefur verið á flótta í fjögur ár – Fjölskyldan grátbiður hann um að gefa sig fram
Fréttir
Í gær

Björn Ingi segir átök vera fram undan: „Tekist er á um þessi mál að tjaldabaki þessa dagana“

Björn Ingi segir átök vera fram undan: „Tekist er á um þessi mál að tjaldabaki þessa dagana“
Fréttir
Í gær

Guðrún segir að slagkrafturinn í sleggju Kristrúnar sé enginn

Guðrún segir að slagkrafturinn í sleggju Kristrúnar sé enginn