fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fókus

Fyndin og frekar hreinskilin lýsing á stjörnumerkjunum – BOGMAÐURINN

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 27. nóvember 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við á Fókus höfum áhuga á stjörnuspeki og þegar við rákumst á skemmtilega og frekar hreinskilna lýsingu á stjörnumerkjunum þá gátum við ekki annað en ráðist í að þýða og staðfæra. Við byrjum á merkinu sem er núna, Bogmanninum ( 22. nóvember – 21. desember) og síðan birtist eitt merki á dag.

Bogmenn eru fæddir ævintýramenn. Þeir elska að kremja kóngulær með berum höndum og reyna að ganga á baðherbergið um miðjar nætur með ljósin slökkt. Þeir myndu frekar taka áhættuna á ævilangri örkumlun, en að fara auðveldu leiðina. Bogmaðurinn elskar að skemmta vinum, fjölskyldu og ókunnugum.

Bogmaðurinn er hávær og hefur enga félagslega fágun. Hann elskar að hneyksla fólk.

Dýr og lítil börn elska Bogmanninn. Sem er slæmt því fullorðnir þola hann yfirleitt ekki. En Bogmaðurinn væri frábær sem sirkuslistamaður eða flakkari. Bogmaðurinn notar danshreyfingar til að lýsa heimspekilegum viðfangsefnum. Barmmerki og bílalímmiðar með dónalegum kvótum eru aðalsmerki Bogmannsins. Þeir henda mat á dýrum veitingastöðum og þeir eru týpan sem talar stöðugt í messu. Aldrei fara heim með Bogmanninn til að kynna hann fyrir foreldrum þínum. Hann mun hneyksla móður þína og stríða pabba þínum.

Bogmanninum er lífsins ómögulegt að fylgjast ekki með og vera samkvæmt nýjustu tísku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 4 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 1 viku

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist
Fókus
Fyrir 1 viku

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu