fbpx
Miðvikudagur 01.maí 2024
Fréttir

Barnaníðingur á Norðurlandi gaf sig fram og viðurkenndi hrottalegt brot – Fær skilorðsbundinn dóm

Óðinn Svan Óðinsson
Fimmtudaginn 19. júlí 2018 10:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður var í lok júní síðastliðinn dæmdur í tveggja ára fangelsi, þar af 21 mánuður skilorðsbundinn fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni. Brotin áttu sér stað frá því að hún var um eins árs þar til hún var fjögurra ára eða á tímabilinu 2010-2014, á þáverandi heimili mannsins. Maðurinn gaf sig sjálfur fram við lögreglu.

Brot mannsins eru einstaklega alvarleg en honum er gefið að sök að hafa ítrekað brotið kynferðislega á barninu. Þá sleikti maðurinn kynfæri barnsins og lét það í eitt til tvö skipti strjúka getnaðarlim sinn og snerta með munninum, að því er fram kemur í dómnum.

Í upphafi árs 2014 vaknaði grunur um að maðurinn hefði framið kynferðisbrot gegn dóttur sinni. Málið var rannsakað en að lokum fellt niður þar sem sakargögn þóttu ekki nægileg til ákæru. Hinn 24. maí 2017 mætti barnaníðingurinn sjálfur niður á lögreglustöð og viðurkenndi að hafa beitt barnið ofbeldi.

Í dómi Héraðsdóms segir að við ákvörðun refsingar hafi verið litið til þess að um væri að ræða mjög alvarlegt brot gegn ungu barni sem manninum var trúað fyrir og hafði fjölskyldutengsl við.

Þá var einnig litið til þess að maðurinn hafði hreinan sakarferil og þess að hann iðraðist mjög verknaðarins. Hann fór af sjálfsdáðum til lögreglu og skýrði hreinskilnis­lega frá brotum sínum, m.a. í því skyni að tryggt yrði að barnið fengi þá aðstoð sem það þyrfti á að halda til að takast á við afleiðingar brotanna. Arnbjörg Sigurðardóttir, aðstoðarmaður dómara, kvað upp dóminn sem er eins og áður segir skilorðsbundinn að mestu eða 21 mánuður af 24.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jón Steinar studdi Höllu Hrund í tæpar 300 mínútur – „Mér varð á í messunni“

Jón Steinar studdi Höllu Hrund í tæpar 300 mínútur – „Mér varð á í messunni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Baldur gefur lítið fyrir gamla skemmtistaðamynd sem hefur farið í mikla dreifingu – „Hólí mólí Baldur, hvernig vogarðu þér?“

Baldur gefur lítið fyrir gamla skemmtistaðamynd sem hefur farið í mikla dreifingu – „Hólí mólí Baldur, hvernig vogarðu þér?“