fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Feministinn Germaine Greer (79): „Megan Markle á eftir að stinga hann af þegar hún kynnist konungsfjölskyldunni“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 18. apríl 2018 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Feministinn Germaine Greer hefur verið nokkuð umdeild síðustu árin þó hún sé meðal þeirra áhrifamestu í heimi á þessu sviði. Það nýjasta er að frúin gefur heldur mikið frat í fyrirhugað hjónaband Harry prins og unnunstu hans, leikkonunnar Megan Markel.

Germaine Greer sjokkeraði til dæmis marga þegar hún gagnrýndi MeToo hreyfinguna og ekki varð sjokkið minna þegar hún hélt því fram að transgender konur „gætu ekki verið konur“.

Nú hristir þessi 79 ára gamli feministi aftur upp í fólki með yfirlýsingum sínum um að Megan muni örugglega flýja af hólmi þegar hún fattar hversu drepleiðinlegt lífið með kóngafólkinu muni verða.

Líkir kóngafólkinu við glæpasamtök

Megan varð þekkt fyrir leik sinn í Suits

Í viðtali við blaðamann hjá 60 Minutes Australia sagðist Greer meðal annars vona að parið væri ástfangið því ellegar myndi lífið verða leikkonunni fullkomlega óbærilegt.

Greer er yfirlýstur andstæðingur bresku konungsfjölskyldunnar og notar orðtakið „The Firm“ gjarna um þessa stofnun en sagt er að bæði Beta drottning og Filipus prins hafi notað þetta orð þegar þau tala um fjölskylduna.

Þetta þykir nokkuð áhugavert, sérstaklega þar sem hinnir goðsagnakenndu glæpamenn, Kray bræður, komu Bretum upp á að kalla glæpasamtök þeirra The Firm.

Tekur hún prinsinn kannski með sér?

Markle er fædd 4. ágúst árið 1981 og var áður gift framleiðandanum Trevor Engelson en þau skildu árið 2013 eftir tveggja ára hjónaband. Greer vill meina að þar sem Markel hafi stungið af áður, muni hún varla hika við að gera það aftur. Spurningin sé bara hvort hún taki Harry með sér eða ekki. Það gæti jú alveg gerst því skilnaðurinn muni snúast um að skilja við fjölskylduna sem stofnun, en ekki endilega manninn.

Eyddi öllum samfélagsmiðla reikningum

Hjónavígslan mun fara fram þann 19. maí næstkomandi og gestalistinn er bæði langur og lekker. Þau trúlofuðu sig í lok nóvember í fyrra en í janúar eyddi Markle öllum samfélagsmiðla reikningum sínum og þakkaði fylgjendum fyrir samveruna.

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=erefQKBSd1E?rel=0]

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 1 viku

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur