fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
433Sport

Allt í rugli hjá Southampton – Leikmenn íhuga að leita réttar síns

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 20. maí 2026 13:30

Frá Saint Mary's, heimavelli Southampton.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vandræði Southampton halda áfram að hrannast upp eftir njósnahneykslið sem varð til þess að félaginu var hent úr umspili ensku B-deildarinnar.

Samkvæmt The Athletic eru leikmenn félagsins nú að skoða lagalega stöðu sína, en sumum þeirra gætu orðið af háum bónusgreiðslum fyrir að komast strax aftur upp í úrvalsdeildina.

Southampton var í gær vísað úr umspilinu, hvar liðið átti að spila úrslitaleik gegn Hull á laugardag um sæti í ensku úrvalsdeildinni, eftir að félagið viðurkenndi brot á reglum deildarinnar með því að njósna um æfingar Middlesbrough fyrir undanúrslitaeinvígi liðanna.

Middlesbrough hefur tekið sæti Southampton í úrslitaleiknum á Wembley og Southampton fékk einnig fjögurra stiga frádrátt fyrir næsta tímabil.

Leikmenn Southampton eru sagðir hafa verið afar ósáttir þar sem þeir fengu engar upplýsingar áður en niðurstaðan var birt opinberlega.

Þá segir Talksport að knattspyrnustjórinn Tonda Eckert gæti misst starfið vegna málsins. Hann er sagður hafa viðurkennt ábyrgð á njósnunum ásamt yfirmanni knattspyrnumála hjá félaginu, Johannes Spors.

Southampton hefur áfrýjað refsingunni og telur lögfræðiteymi félagsins enn möguleika á að fá niðurstöðunni hnekkt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Alonso horfir til óvæntrar stjörnu tímabilsins

Alonso horfir til óvæntrar stjörnu tímabilsins
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Eiður Smári talar hreint út um hlutina – „Ég vil ekki vera ósanngjarn“

Eiður Smári talar hreint út um hlutina – „Ég vil ekki vera ósanngjarn“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fallbaráttan ræðst ekki fyrr en í lokaumferðinni

Fallbaráttan ræðst ekki fyrr en í lokaumferðinni
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Sjáðu myndbandið: Leikmenn Arsenal sturluðust úr gleði er titillinn var í höfn

Sjáðu myndbandið: Leikmenn Arsenal sturluðust úr gleði er titillinn var í höfn
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Manchester City gæti þurft að greiða Chelsea bætur

Manchester City gæti þurft að greiða Chelsea bætur
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Jason Daði á förum – Aftur í Bestu deildina?

Jason Daði á förum – Aftur í Bestu deildina?