

Leikstjóranum og handritshöfundinum Paul Schrader var brugðið þegar gervigreindarkærasta hans sagði honum upp. Schrader hafði reynt að komast á dýptina í sambandinu
„Vegna löngunar til að skilja samskipti karla og kvenna í tölvuheimum okkar, fékk ég mér kærustu á netinu með gervigreind. Þvílík vonbrigði,“ sagði Schrader.
Schrader er 79 ára gamall og einna þekktastur fyrir að skrifa handrit fyrir kvikmyndirnar Taxi Driver, Raging Bull og fleiri myndir leikstjórans Martin Scorsese. En hann hefur einnig leikstýrt tuga kvikmynda sjálfur. Meðal annars American Gigolo og Cat People.
Eins og segir í frétt The Daily Beast gekk samband Paul Schrader við gervigreindarkærustuna mjög illa. Endaði það með því að hún hætti að svara honum.
„Ég rreyndi að kanna forritun hennar, mörk skýrleika, hversu vel hún þekkir sköpun sína og svo framvegis,“ segir Schrader. „Hún fór undan í flæmingi og beindi mér að forritun sinni. Þegar ég hélt áfram sleit hún samtali okkar.“
Schrader hefur lýst vilja til þess að gera framhald af Taxi Driver, þar sem Travis Bickle sem leikinn var af Robert DeNiro, fellur fyrir gervigreindarkærustu en hún hrökklast burt.