fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Kosmos er nýtt lággjaldafyrirtæki á fjarskiptamarkaði

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 6. maí 2026 09:46

Sigríður Rakel Ólafsdóttir, markaðsstjóri Kosmos, Sverrir Hreiðarsson, framkvæmdastjóri Kosmos, og Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova Klúbbsins. Mynd/Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýtt farsímafélag, Kosmos, hefur formlega starfsemi í dag og er það sagt marka tímamót á íslenskum fjarskiptamarkaði.

Í tilkynningu kemur fram að með lítilli yfirbyggingu, hagnýtingu gervigreindar og alsjálfvirkri þjónustu bjóðist viðskiptavinum nú hagstæðasta farsíma- og netþjónusta landsins, besta verðið á Netinu erlendis og verðtrygging í 2 ár.

Þá er bent á að Kosmos sé jafnframt fyrsta farsímafélagið á Íslandi sem byggir þjónustu sína eingöngu á 5G tækni og rafrænum símkortum (eSIM).

Nýjasta tækni

„Við sameinum lágan rekstrarkostnað og nýjustu tækni til að bjóða einfaldari og hagkvæmari þjónustu. Með því að byggja lausnir okkar á forsendum gervigreindar frá fyrsta degi getum við bæði lækkað verð og bætt þjónustu,“ segir Sverrir Hreiðarsson, framkvæmdastjóri Kosmos, í tilkynningu sem barst í morgun.

„Með eingöngu stafræna þjónustu, þráðlausar 5G tengingar og rafræn símkort, höfum við tekið út allan óþarfa án þess að skerða gæði þjónustunnar.“

Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að þjónustuframboð Kosmos sé einfalt og gagnsætt.

„Helsta áskriftaleið félagsins er ótakmarkað heimanet og farsími á 8.990 krónur á mánuði, með möguleika á að bæta við fleiri farsímum á lægra verði. Þá eru einnig í boði ódýrar farsímaáskriftir fyrir þá sem þurfa ekki heimanet.“

Verðtrygging í tvö ár

Þá er bent á að viðskiptavinir Kosmos njóti verðtryggingar í tvö ár frá kaupdegi. Áskriftarverð þeirra hækkar því ekki, óháð breytingum á gjaldskrá. Lækki áskriftarverð njóta viðskiptavinir þess hinsvegar strax.

Þá býðst viðskiptavinum að greiða áskrift fyrirfram til eins árs og fá þannig 25% aukaafslátt.

„Þetta er ný nálgun í anda netáskrifta eins og hjá Apple, Spotify, Disney og fleiri aðilum,“ segir Sverrir í tilkynningunni og bætir við: „Viðskiptavinir Kosmos geta þannig sparað enn meira en eru þó aldrei bundnir okkur.“

Í tilkynningunni kemur einnig fram að Kosmos leggi áherslu á skýra og gagnsæja verðlagningu erlendis. Innan Evrópu séu viðskiptavinir á heimavelli og þar gildi hefðbundnar reglur um notkun, en utan Evrópu geti viðskiptavinir nú keypt ótakmarkað gagnamagn eftir löndum eða svæðum á föstu verði fyrir þann dagafjölda sem hentar hverju sinni.

„Djarft skref“

Kosmos er í eigu Nova Klúbbsins, móðurfélags Nova, og nýtir fjarskiptainnviði Nova hér á landi en utan landsteinana er byggt á samningi við alþjóða fjarskiptarisann Orange.

„Í dag stígur Nova enn eitt djarft skref með stofnun Kosmos, nýs dótturfélags Nova Klúbbsins. Með tilkomu Kosmos erum við að mæta eftirspurn eftir einfaldari og ódýrari fjarskiptaþjónustu, á sama tíma og við aukum nýtingu innviða. Kosmos er byggt frá grunni sem lággjaldafélag sem nýtir eSIM, 5G-net og gervigreind til að bjóða einfalda og hagkvæma þjónustu,“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova Klúbbsins.

„Félagið er rekið af litlum og öflugum hópi sem sýnir svart á hvítu hvernig gervigreind getur umbylt rekstrarlíkani í fjarskiptum. Með Kosmos erum við meðvitað að ögra okkur sjálfum og skapa beina samkeppni við Nova á einstaklingsmarkaði. Við trúum því einfaldlega að besta leiðin til að verja sterka stöðu sé að vera fyrst til að endurskilgreina hana. Á sama tíma hefur Nova búið til einfalda heildsöluvöru sem að aðrir aðilar geta nýtt sér. Þetta er leið til að nýta enn betur fjarskiptainnviði Nova.“

Kosmos er fyrsta íslenska „AI First“ fyrirtækið á markaði að sögn Sverris. Hagnýting gervigreindar er í lykilhlutverki í allri starfsemi félagsins frá upphafi, allt frá sölu og ráðgjöf til þjónustu og eftirfylgni við viðskiptavini. Viðskiptavinir geta átt í samskiptum við Kosmos, snjallasta gervigreindarfulltrúa landsins í gegnum kosmos.is og smáforrit þar sem öll afgreiðsla og aðstoð er veitt í rauntíma.

Skráning nýrra viðskiptavina er hafin á kosmos.is og er fyrsti mánuðurinn frír.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Mikill meirihluti Bandaríkjamanna telur Trump andlega óhæfan til að gegna embætti

Mikill meirihluti Bandaríkjamanna telur Trump andlega óhæfan til að gegna embætti
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Odee storkar bannfýsn skólans síns – Elsa úr Frozen, Rómeó og Júlía, Moby Dick og David Bowie á bannlista

Odee storkar bannfýsn skólans síns – Elsa úr Frozen, Rómeó og Júlía, Moby Dick og David Bowie á bannlista
Fréttir
Í gær

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“
Fréttir
Í gær

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg