
Eiginleg launahækkun formanns VR eftir samþykkt stjórnar félagsins síðastliðinn miðvikudag er innan við 200 þúsund krónur, en hækkun á launatölunni frá VR er meiri, þar sem tekin var ákvörðun um að laun sem formaðurinn hefur þegið sem varaforseti ASÍ og stjórnarmaður í LÍV (Landssamband íslenskra verslunarmanna) renni inn í VR. Formaðurinn þiggi því laun eingöngu frá VR.
Þetta kemur fram í athugasemdum Stefáns Sveinbjörnssonar, framkvæmdastjóra VR, við frétt DV um launamál formanns VR í gærkvöld. Þar kom fram að laun formanns VR hækka eftir breytinguna um yfir 500 þúsund krónur. Stefán upplýsir að meirihluti af þeirri upphæð er í raun tilfærsla á launum sem formaðurinn hefur þegar haft, í áðurnefndum aukastörfum.
„Málið hefur fengið ítarlega umfjöllun innan launanefndar og stjórnar. Með breytingunum sem stjórn samþykkti í vikunni er gert ráð fyrir að laun formanns séu greidd af VR og að önnur laun fyrir störf innan hreyfingarinnar komi til frádráttar og renni þannig inn til VR. Samhliða var gerð leiðrétting á launum formanns til að samræma þau við laun fyrir sambærileg störf og eru þau nú 1.913.000. Heildarlaun núverandi formanns fyrir breytinguna voru 1.724.064,“ segir Stefán.
Í frétt DV í gærkvöld var ranglega sagt að laun formannsins væru 1.950.000 eftir breytinguna. Rétt upphæð er 1.913.000. Beðist er velvirðingar á þessu.
Stefán bendir einnig á að fyrri formenn VR hafi verið með hærri laun en núverandi formaður, Halla Gunnarsdóttir, fær í dag eftir breytinguna.
Eftir stendur að raunlaun Höllu hækka úr 1.724.064 kr. í 1.913.000, sem er hækkun upp á 188.936 kr. Einn stjórnarmanna, Jónas Yngi Ásgrímsson, greiddi atkvæði gegn breytingunni. Hann segir í samtali við mbl.is í dag og við DV í gærkvöld að þó að í raun væri um leiðréttingu að ræða þætti honum tímasetning breytingarinnar óheppileg:
„Ég greiddi atkvæði gegn henni vegna þess að ég gerði mér grein fyrir því að það yrði pínulítið fjölmiðlafár út af þessu og þetta væri kannski ekki alveg rétti tíminn til þess að hækka laun þegar við stæðum frammi fyrir mögulegum uppsögnum kjarasamninga í haust,“ segir Jónas í samtali við mbl.is.
Stefán Sveinbjarnarson, framkvæmdastjóri VR, sendi DV minnisblað launanefndar VR sem stjórn VR byggði ákvörðun sína á. Þar er farið ítarlega yfir forsendurnar og meðal annars eru laun formannsins borin saman við laun fyrri formanna. Hægt er að lesa minnisblaðið með því að smella á tengilinn hér að neðan: