
Söngvarinn d4vd hefur verðið handtekinn vegna rannsóknar lögreglu á andláti 14 ára stúlku, Celeste Rivas Hernandez. Rotnandi lík hennar fannst falið í skotti Teslu-bifreiðar í eigu söngvarans á síðasta ári.
Fljótlega eftir að fréttir bárust af líkfundinum greindu fjölmiðlar frá því að Celeste hefði strokið að heiman eftir að söngvarinn fór að gera sér dælt við hana. Talið er að hún hafi búið hjá söngvaranum og að þau hafi átt í ástarsambandi sem mátti ekki fréttast vegna aldurs stúlkunnar.
Lögreglan hefur sætt ámæli fyrir að leyfa söngvaranum að ganga laus, enda þótti flestum ljóst að jafnvel þó að d4vd hafi ekki banað stúlkunni þá hafi hann gerst sekur um barnaníð, en hann er 21 árs gamall.
Verjendur söngvarans segja í yfirlýsingu að sönnunargögnin muni hreinsa skjólstæðing þeirra af öllum grun. Hann hafi ekki myrt Celeste og hafi ekkert með andlát hennar að gera.
Að sögn fjölmiðla mun lögregla nú vera að meta hvort ástæða sé til að gefa út ákæru.
Lík stúlkunnar fannst þann 8. september eftir að kvartanir bárust til yfirvalda um óþef frá bifreiðinni. Hennar hafði verið saknað frá árinu 2024 þegar hún strauk að heiman, en þá var hún aðeins 13 ára gömul. Hún hefði orðið 15 ára þann 15. september en þá hafði hún líklega verið látin í töluverðan tíma.
Fram hefur komið að lík hennar fannst við ljótan leik og hafði meðal annars verið aflimað. Búkur hennar og höfuð fundust í plastpoka en útlimir hennar í öðrum poka.
Ekki er ljóst hvert banamein hennar var en eins og segir þá var líkið töluvert illa farið.
Sjá einnig: Kennsl borin á rotnandi lík í yfirgefinni Teslu söngvarans – Ferilinn hefur borið hnekki