
Stefán Blackburn, einn þriggja aðalsakborninga í Gufunesmálinu, sem varðar andlát Hjörleifs Hauks Guðmundssonar, 65 ára manns frá Þorlákshöfn, bar vitni við aðalmeðferð málsins í Landsrétti. Stefán fékk 17 ára dóm í Héraðsdómi Suðurlands fyrir hlutdeild sína í málinu. Þó að efnislega hafi ekki verið grundvallarmunur á vitnisburði Stefáns núna og við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Suðurlands í fyrrahaust, var tónninn allt annar. Var Stefán harmi sleginn í vitnastúkunni og blygðaðist sín fyrir framgöngu sína í fyrri vitnaleiðslunni þar sem virtist skorta á auðmýkt og iðrun.
Við þinghaldið í Landsrétti í morgun var fyrst spiluð upptaka með framburði Stefáns við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Suðurlands haustið 2025.
Stefán sagði að hann bæri þess merki við vitnaleiðsluna í héraðsdómi vera enn með einkenni af fíkniefnaneyslu. Segir hann það vera átakanlegt að sjá sig í skýrslutökunni í héraðsdómi.
Stefán viðurkenndi í Landsrétti í morgun að hann hafi verið að fremja mannrán þegar Hjörleifur var lokkaður upp í bíl við heimili sitt í Þorlákshöfn. Hann sagði að hins vegar hafi það ekki verið ætlun hans að myrða neinn.
Stefáni var mikið niðri fyrir við vitnisburðinn. Hann sagðist vera faðir og að hann kæmi til baka til sinna barna, en ekki Hjörleifur. Hann harmi það.
Hann gaf jafnframt þá skýringu á því að Hjörleifur var fluttur í iðnaðarbil á Kjalarnesi að hann hafi ekki viljað skilja hann eftir á heiðinni.
Aðrir helstu sakborningar í málinu, þeir Lúkas Geir Ingvarsson og Matthías Björn Erlingsson, gefa skýrslu fyrir Landsrétti á eftir.
Stefán viðurkenndi ennfremur í framburði sínum í dag að einn sakborninganna, Matthías Björn Erlingsson, hefði ekki beitt Hjörleif ofbeldi á Hellisheiði. Matthías, sem fékk 14 ára fangelsi í héraðsdómi fyrir hlutdeild sína í málinu, hefur lýst yfir sakleysi en í ákæru voru engar lýsingar á beinu ofbeldi hans í garð Hjörleifs, ólíkt þeim Stefáni og Lúkasi.