

Í tilkynningu kemur fram að starf framkvæmdastjóra hafi verið auglýst laust til umsóknar í byrjun mars þegar Davíð Þorláksson lét af störfum til að taka við sem framkvæmdastjóri hjá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins, nýju félagi sem tekur yfir rekstur og þjónustustýringu Strætó og mun síðar sjá um rekstur Borgarlínu.
„Eftir vandað ferli undir stjórn VinnVinn var niðurstaða stjórnar að ráða Þorstein í starfið en hann kom best út í samanburði við aðra umsækjendur. Við bjóðum Þorstein velkominn til starfa hjá Betri samgöngum í þessu nýja hlutverki og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við hann og annað starfsfólk fyrirtækisins“, segir Eyjólfur Árni Rafnsson, stjórnarformaður Betri samgangna.
Þorsteinn er með meistarapróf í byggingarverkfræði með sérhæfingu í samgönguverkfræði frá University of Washington og lauk BSc-námi í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur starfað hjá Betri samgöngum frá árinu 2021 en var þar áður samgöngustjóri Reykjavíkurborgar frá 2016 til 2021.
Þorsteinn hefur víðtæka reynslu sem stjórnandi og samgönguverkfræðingur og starfaði um árabil hjá verkfræðistofunni Mannviti , meðal annars sem fagstjóri samgangna og sem sviðsstjóri umferðar- og skipulagssviðs. Þá var Þorsteinn verkfræðingur samgönguáætlunar í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu árin 2010 til 2012.