fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Keyrðu viljandi niður mann í umsátri – „Ef þú skýtur á löggur þá keyrum við þig niður“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 07:00

Umsátrið stóð yfir í marga klukkutíma. Skjáskot/Youtube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögregla í sýslunni Tulare í Kaliforníufylki í Bandaríkjunum keyrði viljandi niður mann á fimmtudag og drap hann. Maðurinn hafði skotið lögreglumann til bana.

Atvikið átti sér stað um klukkan 10:20 síðastliðinn fimmtudag, þann 9. apríl, í Tulare sýslu, mitt á milli borganna Fresno og Bakersfield um miðbik fylkisins.

Nokkrir lögreglumenn mættu að húsnæði hins 59 ára David Morales til þess að afhenda honum tilkynningu um útburð. En Morales hafði ekki greitt húsaleigu sína í 35 daga.

Eins og segir í tilkynningu lögreglunnar á samfélagsmiðlinum Facebook vissi Morales af því að þetta stæði til og beið eftir lögreglumönnunum. Var hann klæddur í felulitabúning og vopnaður löngum riffli.

Umsátur í marga klukkutíma

Þegar lögreglan kom á staðinn byrjaði hann samstundis að skjóta og hæfði einn þeirra, hinn 35 ára Randy Hoppert. Hoppert lést af sárum sínum á spítala.

Eftir skothríðina stökk Morales út um glugga á heimili sínu og tók á rás. Um tíma faldi hann sig í runna og það virtist ætla að takast, því að lögreglumennirnir fundu hann ekki. En þegar þeir komu auga á hann hófst skotbardagi. Skiptust Morales og lögreglumennirnir á nokkrum skotum.

Umsátur stóð yfir í marga klukkutíma í götunni og alls var fjórum götum lokað. Kallaði lögreglan til sérsveit sem kom á brynvörðum bílum. Hóf Morales skothríð á þessa bíla. Síðdegis tók lögreglan ákvörðun um að keyra hann niður.

„Ekki skjóta á löggur“

„Við keyrðum hann viljandi niður,“ sagði Mike Boudreaux, lögreglustjóri, á blaðamannafundi. „Ekki skjóta á löggur. Ef þú skýtur á löggur þá keyrum við þig niður.“

Randy Hoppert var 35 ára. Mynd/Lögreglan í Tulare sýslu

Eins og kemur fram í frétt tímaritsins People um málið þá liggur ekki fyrir hvers vegna Morales brást svona við útburðinum. Hann hafði aldrei áður komist í kast við lögin. Hann átti átján skráðar byssur en riffillinn sem hann notaði í umsátrinu var óskráður.

Ekki talinn þola flugið

Randy Hoppert hafði verið sex ár í lögreglunni en þar áður var hann í sjóhernum. Til stóð að flytja hann með sjúkraþyrlu á gjörgæsludeild í Fresno, sem er í um 110 kílómetra fjarlægð frá Tulare, en ástand hans var ekki talið vera nógu gott til að hann þyldi flutninginn.

„Boudreaux lögreglustjóri og við öll hérna á lögreglustöðinni í Tulare sýslu erum í áfalli og harmi slegin yfir þessum hræðilegu atburðum í dag,“ sagði í tilkynningu lögreglunnar. „Við óskum eftir að þið hafið fjölskyldu hins fallna lögreglumanns í bænum ykkar.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna