fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Ísraelsmenn strax farnir að hóta því að drepa nýjan leiðtoga Írans

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 4. mars 2026 08:05

Mojtaba Khamenei hér fyrir miðri mynd. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísraelsmenn gerðu umfangsmiklar loftárásir á hernaðarleg skotmörk í Tehran í nótt. Þetta gerðist í kjölfar árásar Írana á sendiráð Bandaríkjanna í Dúbaí í gærkvöldi, en eldur kom upp í sendiráðinu eftir að dróna var flogið á það.

Greint var frá því í gærkvöldi að Mojtaba Khamenei, sonur Ayatollah Ali Khamenei, sem drepinn var í árásum Ísraelsmanna og Bandaríkjanna um síðustu helgi, hefði verið valinn til að taka við sem æðstiklerkur landsins af föður sínum.

Varnarmálaráðherra Ísraels, Israel Katz, hótaði því í morgun að hver sá sem yrði valinn til að taka við yrði drepinn ef haldið verður áfram á sömu braut.

Í færslu á X skrifaði Katz: „Hvaða leiðtogi sem íranska hryðjuverkastjórnin velur til að halda áfram áætlun sinni um eyðingu Ísraels, hóta Bandaríkjunum, hinum frjálsa heimi og ríkjum á svæðinu, og kúga írönsku þjóðina, verður öruggt skotmark fyrir aftöku – sama hvað hann heitir eða hvar hann felur sig.“

Mojtaba er 56 ára og næstelsti sonur Ali Khamenei og hefur hann sterk tengsl við Írönsku byltingarverðina (IRGC). Mojtaba hefur aftur á móti aldrei gegnt opinberu embætti og ekki haft formlegt hlutverk innan stjórnkerfisins.

Í morgun var svo greint frá því að Hvíta húsið í Bandaríkjunum hefði verið í vikum viðræðum við kúrdíska leiðtoga í Írak um að veita þeim hernaðarlegan stuðning til að gera árásir á Íran. Talið er að þúsundir kúrdískra vígamanna séu við landamæri Íraks og Írans og njóta þeir stuðnings frá sjálfstjórnarsvæði Kúrda í norðurhluta Íraks. Írönsk yfirvöld hafa gert árásir á svæðið síðan stríðið hófst á laugardag.

Ljóst þykir að stríðið sem hófst á laugardag mun dragast á langinn en óvíst er með öllu hver þróunin verður.

Íranir segjast nú hafa fulla stjórn á Hormússundi en sundið, sem liggur á milli Persaflóa og Ómannflóa, tengir mikilvæga sjóleið á milli Mið-Austurlanda og Suðaustur-Asíu, meðal annars með olíu, gas og aðrar nauðsynjar.

Írönsk hernaðaryfirvöld segja að öll skip sem reyna að fara um sundið eigi á hættu að verða fyrir skemmdum af völdum eldflauga eða dróna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna