fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Mikil verðmæti fólgin í gömlum flíkum

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 3. mars 2026 15:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Annað kvöld, miðvikudagskvöldið 4. mars kl. 19:30, verður Emma Shannon, textíllistakona og hönnuður, með spennandi smiðju á Borgarbókasafninu Gerðubergi þar sem hún kennir þátttakendum aðferðir til að umbreyta gömlum sokkum í nýjan textíl.

Margir halda að gömul klæði hafi lokið hlutverki sínu en það er fjarri sanni eins og textíllistakonan, hönnuðurinn og þúsundþjalasmiðurinn Shannon veit mætavel.

Shannon er skosk textíllistakona og hönnuður búsett í Reykjavík, en hún leggur áherslu á endurnýtingu í hönnun sinni, viðgerðir og endurhugsun staðbundins textíls og fatnaðar.

Smiðjan er undir yfirskriftinni Táfýlutextíll með Emma Shannon. Í smiðjunni mun Shannon miðla þekkingu sinni og reynslu og kenna þátttakendum einfaldar aðferðir til að umbreyta gömlum sokkum í nýjan textíl.

Áhersla verður á sköpunargleði og tilraunastarfsemi og uppgötvun nýrra möguleika í hversdagslegum efnum í afslöppuðu og hvetjandi umhverfi.  Þátttakendur þurfa ekki að hafa reynslu af textílvinnnu og því hentar smiðjan byrjendum jafnt sem lengra komnum. Það eina sem þátttakendur þurfa að hafa meðferðis eru slitnir sokkar að heiman!

Smiðjan er haldin undir merkjum „make-a-thek“, alþjóðlegs verkefnis sem Borgarbókasafnið Gerðubergi er þátttakandi í til næstu þriggja ára. Markmið verkefnisins er að búa til vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (prosumers) til að læra nýjar aðferðir í handavinnu, glæða gamlar flíkur nýju lífi og deila þekkingu. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu.

Smiðjan er ókeypis.

Öll hjartanlega velkomin.

Nánar um smiðjuna á heimasíðu Borgarbókasafnsins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna