fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 27. febrúar 2026 15:30

Pink og Cary Hart......á meðan allt lék í lyndi. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngkonan Alecia Beth Moore-Hart, betur þekkt sem Pink, er skilin við eiginmann sinn til 20 ára, Carey Hart, að sögn heimildarmanna tímaritsins People. Pink segir um falsfréttir að ræða.

Hin 46 ára Pink giftist kappakstursmanninum Carey Hart árið 2006 og eiga þau saman tvö börn, son og dóttur á grunnskólaaldri.

Eins og segir í frétt People um málið hefur tímaritið heimildir fyrir því að hjónin séu skilin. En þau hafa áður slitið samvistum um tíma. Vildi talsmaður söngkonunnar ekki svara blaðinu þegar eftir því var leitað.

Segir fréttirnar ósannar

Eftir að tíðindin bárust brást Pink hins vegar illa við og sagði um falsfréttir að ræða. „Það var verið að segja mér að ég væri skilin við eiginmann minn. Ég vissi það ekki. Takk fyrir að láta mig vita. Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu? Börnin, 14 og 9 ára, vita þetta heldur ekki,“ sagði hún í kaldhæðnistón.

Skildu í eitt ár

Pink og Carey Hart kynntust árið 2001 á Summer X Games í heimaborg hennar Philadelphia árið 2001. Þau giftust í Kosta Ríka árið 2006 en tveimur árum seinna var tilkynnt að hjónin væru skilin. Lýstu þau yfir að skilnaðurinn væri í góðu en ári eftir það, vorið 2009, tilkynntu þau sætti og að þau væru hætt við skilnaðinn.

Sjá einnig:

Pink hefur oft misst fóstur:„Mér líður eins og líkaminn hati mig“

„Við erum að byggja upp að nýju. Stundum verðurðu að taka nokkur skref aftur til að komast lengra áfram,“ sagði Pink á sínum tíma.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“