fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Arnór leggur til að Evrópuríki taki beinan þátt í átökunum í Úkraínu

Ritstjórn DV
Mánudaginn 23. febrúar 2026 14:00

Arnór Sigurjónsson varnarmálasérfræðingur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnór Sigurjónsson varnarmálasérfræðingur segir að Evrópa standi frammi fyrir tveimur kostum varðandi Úkraínustríðið. Annars vegar að halda áfram að styðja Úkraínu með sama hætti og verið hefur. Segir hann að sú aðstoð tryggi ekki sigur Úkraínu en gæti verið ávísun á uppgjöf.

Hinn kosturinn er að Evrópuþjóðir blandi sér með beinum hætti í átökin. Gefur Arnór í skyn að betra gæti verið að gera það núna en að bíða þar til Rússar hafi náð vopnum sínum á ný.

Þetta kemur fram í aðsendri grein á Vísir.is. Örn skrifar:

„Innrásarstríð Rússlands í Úkraínu er fyrsta skrefið í að endurreisa fyrrum áhrifasvæði Sovétríkjanna. Falli Úkraína er Evrópa í hættu. Leyniþjónustur bandalagsríkjanna hafa sagt að fari svo megi gera ráð fyrir árás Rússa á einhver lönd Evrópu innan fimm ára. Spurningin er því sú hvort betra sé að stíga inn í þessi átök núna eða bíða þar til Rússar hafa náð vopnum sínum á ný. Verði slík ákvörðun tekin er ekki hægt að gera ráð fyrir stuðningi bandarískra stjórnvalda með núverandi forseta við völd.“

Arnór segir að stuðningur Íslands við varnarbaráttu Úkraínu sé til fyrirmyndar og beri að halda honum áfram svo lengi sem þörf krefur.

Hann vekur athygli á fullyrðingum Zelenskys, forseta Úkraínu, um að innrás Rússa í Úkraínu marki upphaf þriðju heimstyrjaldarinnar:

„Það er rétt að taka orð Zelensky, forseta Úkraínu alvarlega þegar hann segir innrás Rússa fyrir fjórum árum marka upphaf þriðju heimsstyrjaldarinnar. Talið er að um tvær milljónir manna liggi í valnum, annaðhvort látnir eða særðir. Eyðilegging á innviðum er slík að það mun taka áratugi að bæta úr og kostnaðurinn hleypur á hundruðum milljarða dollara. Og það er engin endir á þessum átökum sem ógnar framtíð Evrópu og alls heimsins. Bandaríkin undir stjórn Trumps forseta styðja áform Rússa um að leggja Úkraínu undir sig því ekki bara hefur hann hætt öllum vopna- og fjárhagsstuðningi við landið sem forveri hans studdi heldur gagnrýnir hann Zelensky fyrir að gefast ekki upp og semja við Rússa.“

Greinina má lesa hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Brotist inn í kirkju

Brotist inn í kirkju
Fréttir
Í gær

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf