fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Boðar „kynlífsráðuneyti“ nái hann kjöri og að „engar konur verði ófullnægðar“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 19:30

Sargis Karapetyan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Armenski stjórnarandstæðingurinn Sargis Karapetyan hefur lýst því yfir að nái hann og flokkur hans, Strong Armenia,  meirihluta í komandi þingkosningum í landinu þá muni hann koma á fót sérstöku kynlífsráðuneyti í landinu. Markmið þess verði meðal annars að „engar konur verði ófullnægðar“ í Armeníu. Breska blaðið Telegraph greinir frá.

Ummælin hafa fallið í grýttan jarðveg í aðdraganda kosninga og Saris sakaður um að vera karlremba með forneskjuleg viðhorf.

Sargis er sonur milljarðamæringsins Samvel Karapetyan, sem er einn ríkasti maður Armeníu. Karapetyan eldri hefur sterkt tengsl við Rússland, sér í lagi Vladimir Pútín, og hefur verið sakaður um ýmiskonar glæpsamlegt athæfi. Meðal annars að fjármagna og flytja vopn með ólöglegum hætti til hins umdeilda svæðis, Nagorno-Karabakh, sem Armenía og Azerbaijan hafa tekist á um undanfarna áratugi.  Sá eldri var svo handtekinn síðastliðið sumar vegna málsins og á yfir höfði sér réttarhöld vegna athæfisins.

Það hefur þó ekki stöðvað son hans Sargis til að leitast eftir pólitískum áhrifum í Armeníu. Þingkosningar eru framundan í júní í sumar og kosningabaráttan farin í gang og Sargis vakið athygli fyrir hispurslaus ummæli.

Þau sem nú hafa valdið hneykslun voru látin falla í vinsælu hlaðvarpi þar sem stjórnandinn, Armen Khachikyan, vakti athygli á því að tölfræðin sýndi fram á að konur á miðjum aldrei í Armeníu segjast margar vera kynferðislega ófullnægðar.

Sargis  greip þá boltann á lofti og hét því að kæmist hann til valda þá yrðu „engar konur verði ófullnægðar“ í landinu. Þá hét hann því að koma á fót sérstöku kynlífsráðuneyti.

Flokkur hins umdeilda stjórnmálamanns var aðeins stofnaður fyrir stuttu og því hafa skoðanakannanir, þar sem hægt er að leggja mat á viðtökurnar, ekki litið dagsins ljós. Forsvarsmenn Strong Armenia vonast til þess að Armenar sem séu hlynntir nánara samstarfi við rússnesk stjórnvöld, flykki sér á bak við flokkinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna