Samkvæmt tölfræði verndarsviðs Útlendingastofnunar fyrir apríl 2025 hafði stofnunin tekið fyrir 399 umsóknir um vernd. Þann 15. maí 2025 voru 200 umsóknir óafgreiddar. Útlendingastofnun birti áhugaverða sundurliðun sem sýnir hvaðan þessar umsóknir eru helst að koma.
Í apríl bárust 99 umsóknir um vernd sem er nokkuð minna en í apríl á síðasta ári þegar 160 umsóknir bárust. Af þessum 399 umsóknum sem höfðu borist í lok apríl voru 186 konur og 213 karlar. Af þessum umsóknum voru 76 ólögráða börn. Langflestir umsækjendur voru á aldrinum 18-34 ára, eða 162 en 148 umsóknir komu frá einstaklingum á aldrinum 35-64 ára.
Flestir umsækjendur komu frá eftirfarandi fimm löndum:
Af þeim umsóknum sem hafa verið afgreiddar hafa 189 fengið vernd á grundvelli fjöldaflótta frá Úkraínu, 58 hafa fengið vernd, viðbótarvernd eða mannúðarleyfi í efnislegri meðferð og 90 umsóknum hefur verið synjað. Af þeim sem fengu vernd komu flestir frá Palestínu (21), Tyrklandi (8), Venesúela (8), Nígeríu (6) og Líbíu (5).
Á síðasta ári bárust 1944 umsóknir um vernd, flestar frá eftirfarandi löndum:
Umsóknirnar komu frá 1.565 fullorðnum og 379 börnum. Karlkyns umsækjendur voru 991 og kvenkyns 953.
309 einstaklingum var veitt vernd, viðbótarvernd eða mannúðarleyfi í efnislegri meðferð. Flestir þeirra voru frá Venesúela (81), Palestínu (61), Íran (29) og Afganistan (27). 1.133 einstaklingum var veitt mannúðarleyfi á grundvelli sameiginlegrar verndar vegna fjöldaflótta frá Úkraínu. Vernd og viðbótarvernd fylgir dvalarleyfi með annars vegar þriggja og hins vegar tveggja ára gildistíma. Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða gildir í eitt ár. Leyfin eru endurnýjanleg ef skilyrði veitingar eru enn fyrir hendi.
1.251 fengu synjun á umsókn á síðasta ári, flestir þeirra komu frá Venesúela, Sómalíu, Kólumbíu og Nígeríu. 404 umsóknir fengu ekki efnislega meðferð. Útlendingastofnun aðstoðaði eins 1.227 einstaklinga við að yfirgefa landið í kjölfar synjunar eða í kjölfar þess að þeir drógu umsókn sína til baka.
Þeim sem vilja kynna sér verndarmál betur er bent á upplýsingavef Stjórnarráðsins um málaflokkinn.