
Það voru fagnaðarfundir þegar hinn 14 ára gamli Ægir Þór hitti landsliðsmenn Íslands í Auburn, Alabama, þar sem þeir búa sig undir leik við Argentínu aðfaranótt miðvikudagsins.
Ægir Þór er með ólæknandi vöðvarýrnunarsjúkdóminn Duchenne. Hann kíkti í heimsókn á æfingu ásamt mömmu sinni.
Á samfélagsmiðlum KSÍ segir að landsliðsmenn okkar hafi haft virkilega gaman að því að hitta þennan dugnaðarfork og dáðadreng.
Færslan og myndir af heimsókninni eru hér að neðan.