fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Skrifaði í sögubækurnar í gær – Sá yngsti til að verða enskur meistari

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 20. maí 2026 21:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Max Dowman skrifaði sig í sögubækur ensku úrvalsdeildarinnar þegar Arsenal tryggði sér Englandsmeistaratitilinn á þriðjudagskvöld.’

Hinn aðeins 16 ára gamli sóknarmaður varð yngsti leikmaður sögunnar til að vinna úrvalsdeildina eftir að Manchester City missteig sig gegn Bournemouth og Arsenal tryggði sér titilinn í fyrsta sinn í 22 ár.

Dowman, sem fæddur er árið 2009, hefur átt ótrúlegt tímabil með Arsenal og slegið hvert metið á fætur öðru. Guinness World Records staðfesti metið á samfélagsmiðlum sínum og óskaði unga leikmanninum til hamingju.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Dowman vekur heimsathygli. Hann varð yngsti leikmaður sögunnar til að spila í ensku úrvalsdeildinni þegar hann lék sinn fyrsta leik aðeins 15 ára og 235 daga gamall.

Síðar á tímabilinu varð hann einnig yngsti leikmaðurinn í sögu Meistaradeildarinnar.

Dowman skoraði svo sitt fyrsta úrvalsdeildarmark í mars þegar hann innsiglaði 2-0 sigur Arsenal gegn Everton með glæsilegu marki í uppbótartíma.

Ungstirnið hefur leikið fimm leiki í úrvalsdeildinni á tímabilinu og tryggt sér þar með verðlaunapening fyrir Englandsmeistaratitilinn. Alls hefur hann spilað tíu leiki fyrir aðallið Arsenal í öllum keppnum og er talinn eitt allra stærsta efni ensks fótbolta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt