fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
433Sport

Fullyrt að Jón Daði hafi neitað að mæta í viðtal um helgina

433
Mánudaginn 8. júní 2026 11:54

Mynd: Selfoss

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Harkinu, hlaðvarpi á Fótbolta.net, er því haldið fram að Jón Daði Böðvarsson hafi neitað að mæta í viðtal eftir að hann sneri aftur á völlinn um helgina.

Jón Daði, sem sneri heim á Selfoss í fyrra, hafði ekki komið við sögu í tveimur leikjum fram að sigrinum gegn Fjölni um helgina. Fréttir herma að fyrrum landsliðsmaðurinn hafi verið sendur heim af æfingu, það hafi verið ástæða þeirrar fjarveru.

„Miðað við hvað maður hefur heyrt um hvað hafi gerst þá finnst mér furðulegt að hann sé kominn aftur og hafi fengið bandið. Síðan reyndi Fótbolti.net að fá hann í viðtal eftir leik en hann sagði bara nei, sem er líka skrítið, miðað við hversu vel Selfyssingar hafa höndlað öll sín mál hingað til.

Maður hefði búist við því að hann hefði mætt, sagt þetta mál vera að baki og áfram gakk,“ kemur meðal annars fram í Harkinu.

Óli Stefán Flóventsson veitti Fótbolta.net hins vegar viðtal eftir leik og sagði málinu lokið, auk þess sem hann hrósaði Jóni Daða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool útilokar að selja sitt mesta efni

Liverpool útilokar að selja sitt mesta efni
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fyrirsætan sem elskar Ísland höfð að háði og spotti fyrir rangar fullyrðingar á samfélagsmiðlum

Fyrirsætan sem elskar Ísland höfð að háði og spotti fyrir rangar fullyrðingar á samfélagsmiðlum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður risastór ákvörðun tekin varðandi Ronaldo?

Verður risastór ákvörðun tekin varðandi Ronaldo?
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lék undir stjórn Iraola og segir stuðningsmönnum Liverpool að búast við þessu

Lék undir stjórn Iraola og segir stuðningsmönnum Liverpool að búast við þessu