
Arsenal gæti ráðist í töluverðar breytingar á leikmannahópi sínum í sumar þrátt fyrir að hafa tryggt sér enska meistaratitilinn.
Samkvæmt CBS Sports gætu allt að átta leikmenn yfirgefið félagið, þar á meðal nokkur stór nöfn.
Leandro Trossard, Gabriel Jesus, Ben White, Gabriel Martinelli og Ethan Nwaneri eru nefndir í hópi þeirra sem gætu farið, ásamt því að óvissa er sögð ríkja um framtíð Martin Ödegaard og Kai Havertz.
Þá er Atletico Madrid sagt hafa áhuga á Cristhian Mosquera, þó óljóst sé hvort Arsenal vilji selja hann.
Talið er líklegast að Trossard, Jesus og Martinelli séu þeir leikmenn sem gætu farið.
Mikel Arteta vill einnig styrkja leikmannahópinn vel til að verja titilinn og eru stór nöfn orðuð við félagið.