
Vandræði Southampton halda áfram að hrannast upp eftir njósnahneykslið sem varð til þess að félaginu var hent úr umspili ensku B-deildarinnar.
Samkvæmt The Athletic eru leikmenn félagsins nú að skoða lagalega stöðu sína, en sumum þeirra gætu orðið af háum bónusgreiðslum fyrir að komast strax aftur upp í úrvalsdeildina.
Southampton var í gær vísað úr umspilinu, hvar liðið átti að spila úrslitaleik gegn Hull á laugardag um sæti í ensku úrvalsdeildinni, eftir að félagið viðurkenndi brot á reglum deildarinnar með því að njósna um æfingar Middlesbrough fyrir undanúrslitaeinvígi liðanna.
Middlesbrough hefur tekið sæti Southampton í úrslitaleiknum á Wembley og Southampton fékk einnig fjögurra stiga frádrátt fyrir næsta tímabil.
Leikmenn Southampton eru sagðir hafa verið afar ósáttir þar sem þeir fengu engar upplýsingar áður en niðurstaðan var birt opinberlega.
Þá segir Talksport að knattspyrnustjórinn Tonda Eckert gæti misst starfið vegna málsins. Hann er sagður hafa viðurkennt ábyrgð á njósnunum ásamt yfirmanni knattspyrnumála hjá félaginu, Johannes Spors.
Southampton hefur áfrýjað refsingunni og telur lögfræðiteymi félagsins enn möguleika á að fá niðurstöðunni hnekkt.