fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
433Sport

Viðræðunum er ekki lokið – Þetta er stærsta ástæðan fyrir því að Kane liggur á

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 8. ágúst 2023 07:30

Harry Kane / GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvorki Bayern Munchen né Tottenham hafa gengið frá samningaborðinu þrátt fyrir að því sem kallað var “ lokatilboðið í Harry Kane“ hafi verið hafnað af Tottenham. Sky Sports greinir frá stöðu mála.

Tilboði Bayern upp á meira en 100 milljónir evra var hafnað af Tottenham. Hingað til hefur ekki verið talið að þýska félagið sé til í að bjóða meira í leikmanninn. Daniel Levy og æðstu menn Tottenham eru harðir í horn að taka þrátt fyrir að Kane eigi aðeins ár eftir af samningi sínum.

Bayern taldi tilboð sitt ansi gott og sanngjarnt en það dugði ekki til.

Kane vill fá framtíð sína á hreint sem fyrst og helst fyrir fyrsta leik Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag. Stór ástæða þess að hann vill fá hlutina á hreint er þá að eiginkona hans á von á barni eftir um tvær vikur og má ekki ferðast lengur.

Kane hefur verið stórkostlegur fyrir Tottenham í áraraðir og skoraði til að mynda 30 mörk í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Fyrirsæta yfirgaf stórstjörnuna – Brást sem eiginmaður, faðir og manneskja

Fyrirsæta yfirgaf stórstjörnuna – Brást sem eiginmaður, faðir og manneskja
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Perez endurkjörinn og Mourinho ráðinn

Perez endurkjörinn og Mourinho ráðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stórstjarna opnar sig um þunglyndi – „Vissi ekki við hvern ég ætti að tala og byrgði allt inni“

Stórstjarna opnar sig um þunglyndi – „Vissi ekki við hvern ég ætti að tala og byrgði allt inni“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Yaya Toure landar áhugaverðu starfi

Yaya Toure landar áhugaverðu starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir frá skilaboðum sem Gabriel sendi honum eftir hið hjartnæma augnablik

Segir frá skilaboðum sem Gabriel sendi honum eftir hið hjartnæma augnablik
433Sport
Fyrir 2 dögum

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur