Sparkspekingurinn Mikael Nikulásson furðar sig á að Gylfi Þór Sigurðsson hafi ekki fengið fleiri mínútur með landsliðinu gegn Argentínu í vikunni. Gylfi kom inn á á 82. mínútu í 3-0 tapi í vináttulandsleik liðanna í Alabama.
„Hann hlýtur að vera trylltur eftir að hafa fengið sjö mínútur á móti Argentínu. Hann var þarna að chilla á æfingum og voða gaman. Hvernig nennir hann að fara þangað fyrir sjö mínútur?“ sagði Mikael í Þungavigtinni.
„Hann á bara að ræða þetta við Arnar (landsliðsþjálfara). Hann er 36 ára og okkar besti landsliðsmaður frá upphafi. Hvað gerðist eftir að Gylfi kom inn á, fengum við ekki besta færið okkar í leiknum eftir frábæra aukaspyrnu hans?“