433

Messi tjáir sig um hvað hann og Daníel Tristan ræddu í nótt

Mynd
Það var fallegt augnablik í Bandaríkjunum í nótt þegar Lionel Messi og Daníel Tristan Guðjohsen hittust.

Messi kom inn á fyrir Argentínu og skoraði í 3-0 sigri á Íslandi, en fundur hans við Daníel eftir leik hefur vakið mikla athygli.

Meira
Fallegt augnablik í Bandaríkjunum í nótt – Messi virtist steinhissa þegar hann áttaði sig á því hver væri faðir Daníels

Daníel tjáði Messi að hann hafði spilað með föður hans, Eiði Smára, í Barcelona.

„Hann kom til mín og spurði hvort ég vissi hver hann væri. Ég mundi ekki eftir honum því hann var mjög ungur þegar ég hitti hann,“ sagði Messi um atvikið.

„Ég held ég hafi hitt hann einu sinni, hann mætti með pabba sínum á æfingu.“

Messi og Daníel spjölluðu í nokkurn tíma og fékk íslenski landsliðsmaðurinn treyju goðsagnarinnar að lokum.

Eiður og Messi spiluðu saman með Barcelona frá 2006 til 2009 og unnu þrennuna saman á síðasta tímabili þess fyrrnefnda.