Heimsmeistarar Argentínu reyndust of stór biti fyrir Ísland í vináttuleik í Alabama í nótt.
Valentin Barco kom Argentínu yfir snemma leiks en mörkin létu svo á sér standa fram á 72. mínútu, þegar Lionel Messi skoraði af vítapunktinum eftir að hafa komið inn á sem varamaður skömmu áður.
Thiago Almada innsiglaði svo 3-0 sigur Argentínumanna, sem hefja leik á HM gegn Alsír í næstu viku. Næsta verkefni Strákanna okkar er Þjóðadeildin í haust.
Þess má geta að íslenska liðið var með XG (vænt mörk) upp á 1,48 í leiknum, gegn 2,48 hjá Argentínumönnum.