Bæði karla- og kvennalandslið Íslands í fótbolta mæta heimsmeisturum í kvöld. Ekki er hægt að segja að veðbankar hafi mikla trú á íslenskum sigri í kvöld, hvað þá sigrum.
Stelpurnar okkar ríða á vaðið nú klukkan 19 á Laugardalsvelli gegn Spánverjum. Leikurinn skiptir í raun ekki máli fyrir Ísland hvaða lokastöðu í undanriðli HM varðar.
Liðið mun hafna í þriðja sæti og er í fínni stöðu fyrir umspil um sæti á mótinu. Spánn þarf hins vegar að vinna til að tryggja sig beint inn á mótið.
Veðbankar telja að þeim takist það en á Lengjunni er stuðull á sigur Spánverja 1,06. Hann er 20,33 á Ísland en 6,92 á jafntefli.
Strákarnir okkar mæta svo Argentínu klukkan 1 í nótt. Sá leikur er því í raun á morgun á íslenskum tíma, en hann fer fram í Alabama í Bandaríkjunum. Um er að ræða síðasta vináttuleik Lionel Messi og félaga fyrir HM.
Veðbankar hafa örlítið meiri trú á karlaliðinu, en stuðull á íslenskan sigur á Lengjunni er 11,86. Hann er aðeins 1,13 á Argentínu og 5,73 á jafntefli.
Séu íslenskir sigrar, gegn Spáni annars vegar og Argentínu hins vegar, settir saman á seðil á Lengjunni býður það upp á stuðulinn 241,11, hvorki meira né minna.