433

Mikil gleði þegar Ægir Þór hitti Strákana okkar - Myndir

Mynd
Ægir Þór og Albert Guðmundsson. Mynd: KSÍ

Það voru fagnaðarfundir þegar hinn 14 ára gamli Ægir Þór hitti landsliðsmenn Íslands í Auburn, Alabama, þar sem þeir búa sig undir leik við Argentínu aðfaranótt miðvikudagsins.

Ægir Þór er með ólæknandi vöðvarýrnunarsjúkdóminn Duchenne. Hann kíkti í heimsókn á æfingu ásamt mömmu sinni.

Á samfélagsmiðlum KSÍ segir að landsliðsmenn okkar hafi haft virkilega gaman að því að hitta þennan dugnaðarfork og dáðadreng.

Færslan og myndir af heimsókninni eru hér að neðan.