433

Strákarnir okkar mættir til Japan - Uppselt á stórum leikvangi

Mynd
Mynd: KSÍ

Íslenska karlalandsliðið er mætt til Tókýó í Japan þar sem þeir mæta heimamönnum á sunnudag.

Fyrsta æfing liðsins fór fram í dag og er æft við góðar aðstæður á Nishigaoka Football Field. Allir leikmenn liðsins tóku þátt í æfingunni.

Leikurinn Íslands og Japans fer fram á þjóðarleikvangi Japana klukkan 10:25 að íslenskum tíma á sunnudaginn og verður hann í beinni útsendingu á Sýn Sport.

Uppselt er á völlinn sem tekur um 67.700 manns í sæti. Búist er við um 150 Íslendingum í stúkuna.