433

Arnar um Aron Einar: „Síðasti leikmaðurinn sem ég þarf að vega og meta“

Mynd
Aron Einar Gunnarsson. Mynd DV/KSJ

„Pælingin er bara að gefa honum smá breik, tímabilið er langt,“ segir Arnar Gunnlaugsson um það að reynsluboltinn Aron Einar Gunnarsson sé aðeins valinn í fyrri leik komandi landsliðsverkefnis.

Arnar valdi tvo hópa fyrir vináttuleiki gegn Japan 31. maí og Argentínu 10. júní í dag, en tíu leikmenn eru í báðum hópum. Aron er ekki þar á meðal.

 

„Ég held að hann sé síðasti leikmaðurinn sem ég þurfi að vega og meta, hvernig hann spilar og hagar sér inn í hóp. Ég tel mig vita nokkuð vel hans styrkleika.

Það er frábært að fá hann í Japans-verkefnið. Svo fær hann bara fínasta frí og verður vonandi klár í haust,“ segir Arnar enn fremur.

Ítarlegt viðtal við Arnar um hópinn og komandi leiki er í spilaranum hér ofar.