433

Arnar opinberar hóp sinn á morgun - Fyrri leikurinn utan glugga

Mynd
Mynd: DV/KSJ

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari mun á morgun opinbera val á hópnum sem mun taka þátt í leikjunum gegn Japan og Argentínu sem framundan eru.

Strákarnir okkar mæta Japan í Tókýó þann 31. maí og Argentínu í Alabama í Bandaríkjunum þann 10. júní. Eins og sjá má er töluvert á milli leikjanna og sá fyrri er spilaður áður en landsleikjaglugginn opnar formlega. Ekki er víst hvort eða hvernig áhrif það mun hafa.

Það verður því áhugavert að sjá hvernig valið á hópnum fyrir leikina tvo verður, en má búast við að tilkynnt verði um það í kringum 13 leytið á morgun.

Í kjölfar mun Arnar sitja fyrir svörum blaðamanna.