433

Hjörvar tjáir sig um risatíðindin af Gylfa Þór - Ræddi við enska blaðamenn sem eru orðlausir

Mynd
Gylfi Þór Sigurðsson. Mynd/Getty

Risafréttir bárust í dag þess efnis að Gylfi Þór Sigurðsson sé nú laus allra mála.

Gylfi var þann 16. júlí árið 2021 handtekinn á heimili sínu í Manchester, var honum gefið að sök að hafa brotið gegn ólögráða einstaklingi.

Eftir rúma 600 daga í farbanni frá Bretlandi er Gylfi frjáls ferða sinna og málið látið niður falla, taldi saksóknari engar líkur á sakfellingu í málinu.

Málið var tekið fyrir í hlaðvarpinu vinsæla Dr. Football í dag.

"Maður er búinn að tala við marga blaðamenn úti í Liverpool í morgun og þeir eru allir orðlausir. Þessu munu ábyggilega fylgja einhverjar lögsóknir,“ segir þáttastjórnandinn Hjörvar Hafliðason.

Hrafnkell Freyr Ágústsson og Albert Brynjar Ingason voru með Hjörvari í setti.

"Þessi meðferð á einum manni er svakaleg og að hann hafi gengið í gegnum þetta er svaðalegt dæmi,“ segir Hrafnkell um málið.

Albert lagði einnig orð í belg. "Þetta er mannskemmandi. Tvö ár.“

Margir velta því upp hvort Gylfi snúi nú aftur á knattspyrnuvöllinn. Landsleikir eru til að mynda framundan í júní. Hjörvar segir fólki að búast þó ekki við Gylfa þar.

"Margir velta líklega fyrir sér hvort hann verði mættur í landsleikina í júní. Ég myndi nú telja afskaplega litlar líkur á því.“