433

Sú heitasta afhjúpar magnaða staðreynd og fólk tekur andköf

Mynd

Króatíska fyrirsætan Ivana Knoll var af mörgum, þar á meðal enskum götublöðum, talin sý kynþokkafyllsta á Heimsmeistaramótinu í Katar.

Knoll fylgdi króatíska landsliðinu alla leið í Katar og vakti gríðarlega athygli. Króatía tapaði í undanúrslitum HM fyrir Argentínu en vann leikinn um bronsið gegn Marokkó.

Þegar þetta er skrifað er Knoll með 3,6 milljónir fylgjenda á Instagram. Hefur fjöldinn aukist um fleiri hundruð þúsund á síðustu vikum.

Knoll var í Katar í mánuð þar sem hún virtist njóta lífsins í sandinum og sólinni.

Sem fyrr segir jukust vinsældir Knoll gífurlega í Katar. Nú hefur hún sýnt frá því að færslur hennar á Instagram hafi getað náð til næstum milljarðs notenda á samfélagsmiðlinum í desember mánuði.

Nánar til tekið var Knoll með næstum milljarð impressions á Instagram. Vísar það til hversu oft færslur þínar gætu hafa ratað til notenda.