433

Breyta herbergi Messi í háskólanum í safn

Mynd
Messi og Antonella.

Katar há­skólinn ætlar að breyta herberginu sem Lionel Messi dvaldi í á Heimsmeistaramótinu í lítið safn tileinkað honum.

Heima­vist há­skólans var bæki­stöð argentínska lands­liðsins á meðan á mótinu stóð. Eins og allir vita stóð liðið uppi sem sigurvegari á mótinu eftir frábæran úrslitaleik við Frakkland.

Messi er stjarna liðsins og um hans síðasta HM í knatt­spyrnu var að ræða. Um leið var þetta í fyrsta skipti sem hann vinnur heims­meistara­titilinn og Katar há­skólinn ætlar sér að heiðra þetta mikla af­rek og nýta tengslin við liðið.