433

HM í Katar kosið það besta á þessari öld

Mynd
HM A-landsliða karla fór fram í Katar árið 2022. Getty Images

Notendur BBC kusu Heimsmeistaramótið í Katar í ár það besta á þessari öld, og það með nokkrum yfirburðum.

Mótið í Katar þótti afar vel heppnað innan vallar þó málefni utan vallar hafi verið í brennidepli.

Eins og flestir vita stóðu Argentínumenn með Lionel Messi innanborðs uppi sem sigurvegarar eftir dramatískan sigur í úrslitaleiknum við Frakkland.

Hér að neðan má sjá fimm bestu heimsmeistaramót þessarar aldar að mati lesenda BBC.

Topp 5
1. Katar (2022) - 78%
2. Japan og Suður-Kórea (2002) - 6%
3. Brasilía (2014) - 5%
4-5. Þýskaland (2006) - 4%
4-5. Rússland (2018) - 4%