Bresk yfirvöld ætla að biðja tæknifyrirtækin um upplýsingar um þá sem viðhöfðu kynþáttaníð um leikmenn enska landsliðsins í kjölfar ósigurs þess í úrslitaleik EM á sunnudaginn en þá höfðu Ítalir betur eftir vítaspyrnukeppni.
The Times skýrir frá þessu. „Við viljum að það hafi alvöru afleiðingar fyrir fólk sem tístir þessu níði,“ hefur blaðið eftir ónefndum heimildarmanni innan stjórnkerfisins.
Þetta er gert í kjölfar þess að margir af svörtum leikmönnum enska landsliðsins urðu fyrir kynþáttaníði á samfélagsmiðlum í kjölfar ósigursins. Megnið af níðinu beindist að Marcus Rashford, Jadon Sancho og Bukayo Saka en þeir brenndu af vítaspyrnum í vítaspyrnukeppninni.
Kynþáttaníðið hefur verið gagnrýnt af mörgum þekktum Bretum, þar á meðal af Boris Johnson, forsætisráðherra, og Vilhjálmi prins. Gareth Southgate, landsliðsþjálfari, hefur einnig fordæmt níðið sem og enska knattspyrnusambandið og margir af leikmönnum landsliðsins.
Lundúnalögreglan hefur nú þegar hafið rannsókn á málinu og sagði strax að leik loknum að fjöldi ummæla á samfélagsmiðlum hafi verið tekinn til rannsóknar.
Talsmaður Twitter sagði í gær að miðillinn hafi fjarlægt rúmlega 1.000 færslur, sem innihéldu kynþáttaníð, eftir leikinn. Einnig var lokað fyrir aðgang margra notenda.