433

Sjáðu þegar hinn umdeildi Woodward fékk blautan willy í eyrað

Mynd

Ed Woodward, stjórnarformaður Manchester United er staddur í Kazhakstan þar sem félagið mætir Astana á eftir.

Woodward skellti sér á krá í bænum í gær þar sem stuðningsmenn United voru meðal annars.

Stjórnarformaðurinn umdeildi reif upp kjuðann og var að spila snóker við þá sem hann var með. Einn stuðningsmaður United ákvað að hrekkja Woodward.

Hann labbaði upp að Woodward, stakk fingrinum í munn sinn og tróð honum í eyra Woodward, í Bretlandi er talað um að gefa manni "Wet Willy" eða blautan willy.

Atvikið má sjá hér að neðan en stuðningsmenn United vilja flestir losna við Woodward úr starfi.