433

Hvernig leysir Solskjær vandræðin á miðsvæðinu? - Líklegt byrjunarlið

Mynd
Nemanja Matic.

Það er enn talsvert í það að Paul Pogba miðjumaður Manchester United geti spilað, þá aukast vandræðin á miðsvæðinu sökum þess að Scott McTominay er frá.

McTominay meiddist fyrir landsleikjafríið og verður frá næstu vikurnar. „Pogba fór í aðra skoðun áður en landsleikirnir fóru af stað, þetta er ekki gróið. Hann er að setja meiri kraft í æfingar, það eru nokkrar vikur í hann. Við vonum að hann spili á þessu ári,“ sagði Ole Gunnar Solskjær.

„Scotty meiddist á ökkla og hann verður frá í nokkrar vikur. Rojo er líka meiddur. Tuanzebe, Shaw og Matic eru byrjaðir að æfa, þeir eru kannski ekki klárir í að spila.“

Enskir miðlar telja að Nemanja Matic komi inn hjá Manchester United vegna meiðsla McTominay. Hér að neðan er líklegt byrjunarlið.