433

Verður þetta byrjunarlið Liverpool í stórleiknum á sunnudag?

Mynd

Það er stórleikur á sunnudaginn í ensku úrvalsdeildinni þegar Liverpool heimsækir Manchester United.

Um er að ræða tvö sigursælustu lið Englands en United er í krísu og Liverpool hefur ekki unnið deildina í 29 ár.

Liverpool er á toppnum og hefur unnið alla átta leiki sína, United er hins vegar tveimur stigum frá fallsæti.

Meiðsli hafa herjað á leikmenn United en Mirror heldur því fram að hið minnsta þrír snúi aftur, Paul Pogba, Aaron Wan-Bissaka og Luke Shaw koma allir til baka úr meiðslum. Þá er Anthony Martial sagður eiga fínan möguleika á endurkomu.

Hjá Liverpool er svo Alisson Becker klár í slaginn á nýjan leik og er talið að hann standi í markinu.

Hér að neðan má sjá hvernig líklegt byrjunarlið LIverpool er á sunnudag.