433

Aguero klessukeyrði Ranger Rover bíl sinn í morgun: Sjáðu myndina

Mynd

Kun Aguero framherji Manchester City þarf að setja Range Rover bifreið sína í viðgerð eftir óhapp dagsins.

Aguero var að keyra til æfingu hjá Manchester City þegar hann lenti í árekstri við annan bíl.

Bíll Aguero er illa farinn eins og myndin hér að neðan sannar. Atvikið átti sér stað í morgun þegar Aguero ætlaði á æfingu.

Framherjinn frá Argentínu meiddist illa fyrir tveimur árum þegar hann lenti í hörðum árekstri í Amsterdam, þar ku kappinn hafa verið heppinn að sleppa lifandi.

Hann er ekki slasaður eftir árekstur dagsins en mynd af óhappinu er hér að neðan.