433

Klopp fagnar fjórum árum í starfi: Mögnuð tölfræði hans skoðuð

Mynd

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool fagnar um þessar mundir fjögurra ára starfsafmæli á Anfield Road. Honum hefur vegnað vel í starfi og það stefnir í að það haldi áfram.

Klopp vann sinn fyrsta titil í sumar þegar Liverpool vann Meistaradeildina og nú er liðið í magnaðri stöðu til að vinna deildina.

Klopp hefur náð ótrúlegum árangri og komið Liverpool aftur í fremstu röð, eitthvað sem reyndist öðrum erfitt.

Hér að neðan eru tölfræði molar um sturlaða tíma Klopp.

221 - leikir í öllum keppnum

320 - stig í ensku úrvalsdeildinni, í 152 leikjum. 2,11 stig að meðaltali í leik.

146 - leikir sem Klopp þurfti til að sæka 300 stig, besti árangur stjóra í sögu Liverpool.

458 - mörk í öllum keppnum, 2,07 mörk í leik. Það besta hjá Liverpool í 123 ár.

58.82 - sigurhlutfall, aðeins John McKenna með 69,44 prósent er með betri árangur.

44 - að meðaltali á milli marka hjá Liverpool.

43 - skipti sem Liverpool hefur skorað meira en fjögur mörk undir stjórn Klopp.

14 - lið í ensku úrvalsdeildinni sem Klopp hefur ekki tapað fyrir

17 - sigurleikir í röð í ensku úrvalsdeildinni, geta jafnað metið í deildinni með sigri á MAnchester United.

1 - sá fyrsti í sögu enskra liða að fara með lið í úrslitaleik í Evrópu þrisvar á fyrstu þremur árunum.