433

Sjáðu Mourinho ræða um forystu Liverpool á toppnum: „Þetta er ekkert svakalegur munur“

Mynd

Jose Mourinho, var sérfræðingur Sky Sports á leik Chelsea og Liverpool í gær. Þar ræddi hann um forystu Liverpool á toppi deildarinnar.

Eftir sigurinn á Chelsea í gær er forysta Liverpool aftur fimm stig á Manchester City. Liverpool hefur unnið alla sex leiki tímabilsins.

„Fimm stiga forskot á Manchester City er ekkert svakalegt. Liverpool mun tapa leikjum, City tapaði gegn Norwich og Liverpool mun tapa stigum. City getur tekið svona skrið eins og Liverpool er á núna,“ sagði Mourinho.

„Þetta er ekkert svakalegur munur, það er betra að vera á toppnum. Það er betra að horfa niður töfluna. Sigurinn gegn Chelsea hjá Liverpool, var góður.“

Umræðan er hér að neðan.