433

Gæti spilað gegn Liverpool þrátt fyrir brotið ljóta

Mynd

Masoun Mount leikmaður Chelsea á von um að ná leiknum gegn Liverpool, í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.

Mount var tæklaðu hressilega í tapi gegn Valencia í vikunni, margir óttuðust að meiðsli Mount væru alvarleg.

„Hann á séns, myndin af tæklingunni leit illa út. Vonandi er þetta ekki eins slæmt,“ sagði Frank Lampard.

„Við reynum að fá hann til að æfa í dag, ég get ekki ákveðið þetta fyrr en rétt fyrir leik.“

„Það góða með Mason er viðhorf hans, hann mun gera allt til þess að komast út á völl. Sérstaklega fyrir svona leik.“