433

Enn eitt áfallið hjá City: Einn miðvörður heill - Stones frá í nokkrar vikur

Mynd

Það eru vond tíðindi sem berast frá Manchester City nánast vikulega í upphafi móts.

Leroy Sane meiddist alvarlega í upphafi tímabils og Aymeric Laporte, besti miðvörður liðsins verður frá í hálft ár.

Nú var John Stones að meiðast og því á City bara einn miðvörð sem er heill heilsu. Vincent Kompany fór í sumar en ekkert var keypt.

Það er því aðeins Nicolas Otamendi sem verður leikfær næstu vikurnar, þunnskipað hjá Pep Guardiola.

City er fimm stigum á eftir toppliði Liverpool eftir fimm leiki og erfið staða uppi, með alla þessa menn í meiðslum