fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Ný rannsókn sýnir að skjánotkun getur haft jákvæð áhrif

Pressan
Mánudaginn 9. febrúar 2026 07:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skjánotkun er fyrirferðarmikil í nútímasamfélagi, bæði heima og í vinnunni. Sjónvarp, tölvur, farsímar og tölvuleikir eru oft gagnrýndir fyrir að auka stress og þreytu.

Niðurstöður nýrrar rannsóknar koma eflaust mörgum á óvart því þær eru að í vissum tilfellum geti skjánotkun haft jákvæð áhrif en þó aðeins ef notkunin er takmörkuð.

Í rannsókninni, sem hefur verið birt í vísindaritinu Journal of Community & Applied Social Psychology, kemur fram að heimilið sé ekki alltaf staður þar sem ró og hvíld á sér stað.

Vísindamennirnir greindu gögn um rúmlega 61.000 gifta Bandaríkjamenn og litu á samhengið á milli fjölskyldustærðar, stress og hvað fólk gerir í frítíma sínum.

Niðurstöðurnar sýna að fólk á fjölmennum heimilum, sérstaklega þar sem börn búa, er oftar þreytt og undir álagi.

Fjölskyldustærðin snýst í raun um hversu mörgum kröfum fólk mætir þegar það kemur heim, sagði Soo Min Toh, atferlisfræðingur hjá University of Toronto Mississauga og meðhöfundur rannsóknarinnar.

Þetta þýðir að það geta verið gerðar jafn margar kröfur til fólks á heimilinu og á vinnustaðnum.

Niðurstöður rannsóknarinnar benda einnig til þess að skjánotkun geti verið eins og stutt hvíld frá kröfum hversdagsins.

Foreldrar, sem horfðu á sjónvarp eftir vinnu, sögðust finna fyrir minna stressi en aðrir.

Sama mynstur kom fram hjá kanadískum háskólastúdentum sem vísindamennirnir beindu sjónum sínum einnig að. Símanotkun þeirra dró úr neikvæðum tilfinningum þeirra heima fyrir.

Í annarri rannsókn, sem sömu vísindamenn gerðu, kom í ljós að ungt fullorðið fólk, sem bjó með öðru ungu fólki, átti auðveldara með að sinna daglegum verkefnum sínum ef það eyddi smá tíma í að spila tölvuleiki.

Vísindamennirnir leggja áherslu á að niðurstöðurnar séu ekki hvatning til fólks um að nota skjái ótakmarkað. Stutt og meðvituð skjánotkun getur veitt smávegis andlegt svigrúm.

Byggt á umfjöllun Popular Science og Journal of Community & Applies Social Psychology.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Trump er ekki ósnertanlegur – Svona er hægt að koma honum úr embætti

Trump er ekki ósnertanlegur – Svona er hægt að koma honum úr embætti
Pressan
Í gær

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“
Pressan
Í gær

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“
Pressan
Í gær

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur
Pressan
Í gær

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku
Pressan
Fyrir 2 dögum

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans