Árið 2023 hrapaði flugvél til jarðar í Tver í Rússlandi. Allir tíu um borð létust. Meðal þeirra var Yevgeny Prigozhin, stofnandi og leiðtogi málaliðafyrirtækisins Wagner. Þetta gerðist aðeins tveimur mánuðum eftir að Prigozhin hafði sent málaliða sína í átt að Moskvu þegar hann gerði uppreisn gegn yfirstjórn rússneska hersins eftir langar deilur.
Eins og kunnugt er afturkallaði Prigozhin málaliða sína og ekkert varð úr uppreisninni. En það má telja mjög líklegt að þessi atburður hafi jafngilt dauðadómi yfir Prigozhin því Vladímír Pútín hefur ekki hikað við að láta stytta andstæðingum sínum aldur.
Eftir andlát Prigozhin byrjaði rússneski herinn að taka stóra hluta af málaliðaher hans yfir en hann taldi þá um 50.000 manns. Herinn yfirtók aðallega málaliða í Afríku og skírði hópinn þar „Afríkuherinn“.
En hluti af hinum upprunalega Wagner-hópi er enn til að sögn The Wall Street Journal sem segir að hann sé staddur í landi langt frá Rússlandi, leiðtoginn sé nýr en aðferðir hópsins séu jafn hrottalegar og áður.
Nýi leiðtoginn heitir Pavel Prigozhin og er 25 ára. Eins og nafnið gefur til kynna, þá er hann sonur Yevgeny Prigozhin.
Hann er sagður vera glaumgosi og er það byggt á myndum sem hann birti á samfélagsmiðlum á árum áður þar sem hann lá nakinn um borð í snekkju eða sýndi frá lúxuslífi sínu með einkaflugvél og í stórum pelskápum.
Hann tók virkan þátt í daglegri stjórnun margra fyrirtækja föður síns þegar hann var einungis tvítugur að aldri og var með Wagner-hópnum í Sýrlandi og Úkraínu.
En eftir andlát föður síns þá varð hann nær samstundis leiðtogi þessa illræmda málaliðahóps.
Veikari hópur
Wagner-hópurinn komst í fréttirnar um allan heim vegna hrottaskapar og grimmdar málaliðanna. Hópurinn var ráðinn til starfa af rússneska ríkinu til að berjast með hernum, aðallega í Úkraínu.
Yevgeny var náinn bandamaður Pútíns en eftir hina skammlífu uppreisn 2023 minnkuðu völd Wagner-hópsins mjög hratt.
Í kjölfar andláts Yevgeny tók herinn við stjórn stærsta hluta málaliðahópsins en upprunalegi hluti hópsins, sem enn er til, telur um 500 málaliða að sögn svissnesku hugveitunnar Global Initiative að sögn The Wall Street Journal.
Þetta þýðir að tekjuöflun hópsins er allt önnur en áður þegar hann fékk milljarða fyrir að leigja málaliða til rússneska hersins og sjá mörgum Afríkuríkjum fyrir hernaðarstuðningi. Nýi leiðtoginn hefur breytt hópnum yfir í að vera nánast glæpaveldi sem þénar háar fjárhæðir á gulli, fíkniefnum og vopnum í miðri Afríku.
Gull
Wagner-hópurinn hefur verið í Afríku árum saman en eftir andlát Yevgeny veiktist staða hópsins í Afríku mikið en ekki alls staðar.
Í Mið-afríkulýðveldinu höfðu náin tengsl myndast á milli forseta landsins og hópsins og vildi forsetinn halda áfram að starfa með hópnum eftir andlát Yevgeny. Hópurinn annast því lífvörslu forsetans og þjálfar og berst með her landsins.
Í endurgjald fær hópurinn aðgang að náttúruauðlindum, aðallega gullnámum. Er hópurinn talinn þéna hundruð milljóna dollara í stærstu gullnámu landsins.
Demantar, vodka og útvarpsstöðvar
Hópurinn hefur einnig tekjur af því að selja ópíóíða í Mið-afríkulýðveldinu og á vopnasölu til uppreisnahópa í Súdan og Líbíu.
Hann stundar einnig demantagröft og skógarhögg og framleiðir og selur bjór og vodka.
Hópurinn rekur einnig útvarpsstöðvar þar sem jákvæðar fréttir af hópnum eru fluttar og um Pútín og Rússland.