Pressan

Dularfullt fyrirbæri birtist nærri bandarískri herstöð – Hvað í ósköpunum er þetta?

Mynd
Fyrirbærið hefur vakið talsverða athygli. Mynd/Sara Osborn

Dularfullt fyrirbæri, sem minnti helst á risavaxna marglyttu, náðist á myndband í Anchorage í Alaska í sumar. Fyrirbærið virtist svífa yfir skóglendi nærri bandarískri herstöð áður en það hvarf skyndilega sjónum.

Hjón sem urðu vitni að atvikinu segjast enn enga skýringu hafa fengið á því sem þau sáu. Breska blaðið Daily Mail fjallar um málið og ræðir við Söru Jane Osborn, sem varð vitni að fyrirbærinu ásamt eiginmanni sínum, Pete, að kvöldi 15. júní í sumar.

Hjónin voru á ferð um Anchorage þegar Sara kom auga á fallegan regnboga og ákvað að taka af honum ljósmyndir. Eiginmaður hennar stöðvaði bílinn á auðu bílastæði svo hún gæti myndað regnbogann í friði.

Þegar hún beindi símanum að himninum tók hún eftir dökkum bletti á skjánum. Í fyrstu taldi hún að moskítófluga hefði komið sér fyrir framan myndavélina en áttaði sig fljótlega á því að eitthvað mun óvenjulegra væri á ferðinni.

Þegar hún leit upp frá símanum sá hún dökkan hlut svífa yfir trjátoppum í fjarska. Hún kallaði á eiginmann sinn, sem sá fyrirbærið einnig, og hóf að taka myndir og myndband.

Að sögn Söru var hluturinn svartur og silfurlitaður og minnti helst á marglyttu. Frá honum héngu nokkrir angar sem virtust hreyfast óháð hver öðrum á meðan fyrirbærið sveif í loftinu og snerist til hliðanna.

Hún áætlar að hluturinn hafi verið sýnilegur í um þrjár mínútur áður en hann hvarf jafn skyndilega og hann hafði birst.

Sara segist hafa velt því fyrir sér hvort um flugdreka gæti verið að ræða en telur hreyfingar hlutarins ekki samræmast því.

„Það var ekki nægilega mikill vindur til að halda flugdreka á lofti. Hreyfingar hans voru augljóslega ekki eins og hjá flugdreka.“

Hún bendir jafnframt á að angarnir hafi hreyfst með ólíkum hætti og að flugdreki fylgi vindáttinni. Það hafi þetta fyrirbæri ekki gert.

Það sem gerir atvikið enn forvitnilegra er að hjónin telja fyrirbærið hafa verið yfir skóglendi nærri Joint Base Elmendorf-Richardson, einni af mikilvægustu herstöðvum Bandaríkjanna í Alaska.

Á herstöðinni eru meðal annars F-22 Raptor-orrustuþotur og þar fer fram umfangsmikil starfsemi á sviði loftvarna, eftirlits og herflutninga.

Eiginmaður Söru áætlaði að fyrirbærið hefði hugsanlega verið í innan við fimm kílómetra fjarlægð frá þeim, þó erfitt sé að festa fingur á það.

Sara viðurkennir sjálf að hugsanlega sé til einföld skýring á fyrirbærinu og mögulega hafi þetta verið einhver framandi tegund af dróna. Hreyfingarnar hafi þó verið óvenjulegar og þá hafi engir aðrir sjónarvottar gefið sig fram.

„Þetta var þarna og svo var það horfið. Ég get ekki neitað því að þetta gerðist.“