Þú hefur kannski heyrt umræðuna um hvort það sé hollt að drekka eitt glas af víni á dag eða ekki. Sumir segja það hollt, aðrir segja að svo sé ekki og að þetta sé bara slæmur ávani.
Í nýrri rannsókn, sem var birt í vísindaritinu Journal of Studies on Alchol and Drugs í lok október, er ljósi varpað á hvaða áhrif daglega áfengisneysla hefur á dánarlíkurnar.
Vísindamennirnir komust að því að þeir sem drekka 14 áfenga drykki, af venjulegri stærð, á viku eru í hættunni 1 á móti 25 að deyja af völdum áfengisneyslu.
Rannsóknin heitir Alchol Intake and Health Study og byggir á yfirferð yfir rúmlega 7.200 rannsóknir um áfengi og sjúkdóma.
Vísindamennirnir skoðuðu einnig áhrif minni áfengisneyslu og komust að því að þeir sem drekka að hámarki 7 drykki á viku voru aðeins örlítið líklegri til að deyja ótímabærum dauða en þeir sem ekki drekka áfengi.
Þegar neyslan var komin í 8,5 drykki á viku eru líkurnar á ótímabærum dauða um 1 á móti 100.
Rannsóknin sýndi ekki fram á nein jákvæð áhrif áfengisneyslu á heilsuna. Þetta gengur því gegn þeirri trú að eitt rauðvínsglas á dag sé gott fyrir hjartað.